26.07.17 - 14:21
Bergur Tareq Tamimi
Stjarnan fær landsliðskonu frá Túnis (Staðfest)

Mynd: Bergur Tareq

Mynd: Bergur Tareq

Stjarnan hefur bætt við sig leikmanni fyrir síðari hluta keppnistímabilsins í kvennafótboltanum, en Imen Troudi, 28 ára landsliðmaður frá Túnis, hefur gengið til liðs við félagið.
Auk ferils heima fyrir hefur Troudi leikið í Kanada, en undanfarin ár hefur hún leikið í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.
Troudi er fjölhæfur leikmaður, en leikur oftast einhverja af stöðunum á miðju vallarins.
Troudi er væntanleg til landsins á næstu dögum.
Hún verður því klár í slaginn þegar keppni í Pepsi-deild kvenna hefst eftir EM hléið þann 10. ágúst en þá mætir Stjarnan liði ÍBV.