Fotbolti.net
26.08.12 - 08:00
Brynjar Ingi Erluson

Steed Malbranque til Lyon (Staðfest)

Steed Malbranque til Lyon (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Franski miðvallarleikmaðurinn Steed Malbranque hefur tekið upp skóna að nýju eftir nokkura mánaða fjarveru frá boltanum, en hann samdi við franska stórliðið Lyon.
Malbranque, sem er 32 ára gamall lék sinn fyrsta leik á atvinnumannaferilnum með Lyon árið 1998, en síðan þá hefur hann komið víða við.

Hann var síðast á mála hjá St. Etienne í Frakklandi, en ákvað að rifta samning sínum við félagið.

Hann var þá einnig á mála hjá ensku liðunum Fulham, Sunderland og Tottenham Hotspur og átti farsælan feril á Englandi, en hann hefur nú skrifað undir eins árs samning við Lyon eftir að hafa æft með þeim allt undirbúningstímabilið.

Heimild: FIFA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.