26.08.12 - 15:27
Ívan Guðjón Baldursson
Simon Poulsen kominn til Sampdoria (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Ítalska knattspyrnufélagið Sampdoria er búið að tilkynna að danski landsliðsmaðurinn Simon Poulsen hefur skrifað undir samning við félagið.
Poulsen hefur verið samningslaus síðan í sumar þegar hann framlengdi ekki samning sinn við AZ Alkmaar í Hollandi en nú er hann búinn að finna sér nýtt lið.

Poulsen var byrjunarliðsmaður í danska landsliðinu á EM 2012 og var orðaður við mörg lið á borð við Ajax, Aston Villa og Deportivo La Coruna.
Poulsen mun skrifa undir þriggja ára samning eftir læknisskoðun á mánudaginn og mun hann spila í treyju númer 15.
Poulsen er 27 ára gamall og spilar sem vinstri bakvörður en getur þó leyst aðrar stöður af hólmi.