Fotbolti.net
26.09.18 - 15:44
Hafliði Breiðfjörð

Orri hættur með kvennalið FH (Staðfest)

Orri er hættur þjálfun kvennaliðs FH.

Orri er hættur þjálfun kvennaliðs FH.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Orri Þórðarson er hættur þjálfun kvennaliðs FH en hann tilkynnti félaginu og leikmönnum þessa ákvörðun sína í dag.
Þetta staðfesti Orri í samtali við Fótbolta.net í dag.

Orri stýrði liði FH í fjögur ár.

Hann kom liðinu upp úr 1. deildinni árið 2015 og undir hans stjórn endaði liðið svo í 6. sæti 2016 og 2017. Liðið setti þá undir hans stigamet FH í efstu deild.

Tímabilið í ár reyndist liðinu erfitt og þær féllu að lokum í Inkasso-deildina í haust eftir aðeins tvo sigurleiki í 18 leikjum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.