Fotbolti.net
26.09.20 - 13:53
Ívan Guðjón Baldursson

Championship: Góð byrjun Watford og Swansea heldur áfram

Championship: Góð byrjun Watford og Swansea heldur áfram
Canon

Mynd: Getty Images

Watford og Swansea hafa byrjað nýtt tímabil í ensku Championship deildinni vel og deila þau toppsætinu eftir sigra sína í dag.
Bæði lið eru með sjö stig eftir þrjár umferðir án þess að hafa enn fengið mark á sig.

Í dag hafði Watford betur gegn Luton Town á meðan Swansea lagði Wycombe Wanderers á útivelli.

Hinn efnilegi Joao Pedro gerði eina mark leiksins í 1-0 sigri Watford. Andre Ayew og Jamal Lowe sáu um markaskorunina fyrir Swansea.

Næsti leikur Swansea er gegn Jóni Daða Böðvarssyni og félögum í Millwall. Watford heimsækir Reading í næstu umferð.

Watford 1 - 0 Luton
1-0 Joao Pedro ('35)

Wycombe 0 - 2 Swansea
0-1 Andre Ayew ('13)
0-2 Jamal Lowe ('23)

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Birmingham15+1429
2Middlesbrough15+1129
3Stoke City15+629
4Wolves15+828
5West Brom15+828
6Swansea15+426
7Southampton15+1424
8QPR15+624
9West Ham15+1423
10Sheffield Utd15+222
11Portsmouth15+222
12Norwich15+821
13Blackburn15-121
14Cardiff City15018
15Wrexham15-218
16Millwall15-418
17Bristol City15-818
18Bolton15-917
19Charlton Athletic15-1017
20Watford15-1015
21Lincoln City15-1115
22Burnley15-910
23Derby County15-1610
24Preston NE15-178
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.