Southampton 0 - 1 Wolves
0-1 Raul Jimenez ('61 )
0-1 Raul Jimenez ('61 )
Southampton fékk Wolves í heimsókn í fyrri leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.
Leiknum lauk með 1-0 sigri Wolves en Raul Jimenez skoraði markið eftir klukkutíma leik.
Þetta er fyrsta mark hans í deildinni síðan hann snéri aftur eftir að hann höfuðkúpubrotnaði í leik gegn Arsenal í nóvember í fyrra. Hann skoraði síðast fyrir 11 mánuðum næstum því uppá dag eða 25. október í 1-1 jafntefli gegn Newcastle.
Þetta var annar sigur Wolves á tímabilinu, liðið er í 13. sæti deildarinnar. Southampton er hinsvegar enn án sigur með fjögur stig í 16. sæti.
Athugasemdir