26.10.12 - 10:00
Elvar Geir Magnússon
Mark Tubæk og Edin Beslija í Þór (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þór Akureyri hefur samið við tvo af betri leikmönnum 1. deildarinnar í sumar. Það eru Mark Tubæk sem kemur frá BÍ/Bolungarvík og Edin Beslija sem kemur frá Víkingi Ólafsvík.
Tubæk er 24 ára danskur leikmaður sem kom til Djúpmanna í júni, lék ellefu leiki með liðinu og skoraði sex mörk.

Hinn leikmaðurinn er Bosníumaðurinn Beslija sem er 25 ára. Hann hefur verið lykilmaður hjá Ólafsvíkurliðinu síðustu þrjú tímabil og var í liði ársins í 1. deildinni í sumar. Hann á 72 leki að baki með Ólafsvíkingum í 1. og 2. deild.
„Þetta eru afar ánægjuleg tíðindi enda um feikna sterka leikmenn að ræða sem án efa eiga eftir að reynast Þór vel í deild með bestu liðum á Íslandi.,\" segir á heimasíðu Þórs.
Þór vann 1. deildina í sumar og mun leíka í Pepsi-deildinni á ný á næsta ári en Víkingur Ólafsvík fylgdi liðinu upp.
Mark Tubæk má sjá á myndinni hér til hægri en Beslija á myndinni að neðan

Mynd: Björn Ingvarsson