26.10.12 - 18:21
Elvar Geir Magnússon
Viktor Bjarki genginn í raðir Fram (Staðfest)

Þorvaldur og Viktor Bjarki.

Mynd: Heimasíða Fram

Þorvaldur og Viktor Bjarki.

Mynd: Heimasíða Fram
Miðjumaðurinn Viktor Bjarki Arnarsson er orðinn leikmaður Fram. Hann skrifaði undir tveggja ára samning við félagið í dag.
Viktor Bjarki var samningslaus hjá KR en eins og Fótbolti.net greindi frá í gær voru viðræður komnar af stað milli hans og Framara.

„Hann er gæðaleikmaður sem mun koma með aukna reynslu inn í leikmannahópinn. Reynslu sem hefur vantað,“ segir Þorvaldur Örlygsson, þjálfari Fram, við heimasíðu félagsins.
„Ég get eiginlega ekki beðið og hlakka til að takast á við þá áskorun að spila fyrir Fram,\" segir Viktor Bjarki sem er 29 ára. Hann var valinn leikmaður ársins í efstu deild 2006 þegar hann lék með Víkingi R.
Hann gekk svo í raðir Lilleström en kom aftur heim til Íslands fyrir tímabilið 2008 og gekk þá í raðir KR.