Harry Kane og Son Heung-min voru bestu menn vallarins er Tottenham lagði Burnley að velli í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.
Kane lagði sigurmark leiksins upp fyrir Son eftir hornspyrnu og var Jose Mourinho spurður út í samstarfið þeirra að leikslokum.
Kane og Son hafa myndað magnað sóknarpar og eru í öðru sæti í sögu úrvalsdeildarinnar yfir þá leikmenn sem hafa lagt oftast upp fyrir hvorn annan. Frank Lampard og Didier Drogba eiga metið.
Mourinho segist ekki vilja fá allt lofið fyrir samstarfið frábæra, hann geti deilt því með Mauricio Pochettino. Pochettino þjálfaði Kane og Son saman í rúmlega fjögur ár.
„Þetta er samstarf sem kemur frá tíma Mauricio hjá félaginu. Ég vil ekki fá allt lofið, ég get deilt því með Mauricio. Þeir hafa spilað saman mjög lengi," sagði Mourinho.
„Það sem er best við þá er að þetta eru tveir toppleikmenn en þeir eru samt nánir vinir og alveg lausir við öfund eða græðgi. Þeir spila báðir fyrir liðið. Þetta eru tveir frábærir leikmenn, tveir frábærir strákar."
Tottenham er í fimmta sæti deildarinnar með ellefu stig eftir sex umferðir, tveimur stigum eftir toppliðunum tveimur frá Liverpool.
Kane er búinn að skora 5 mörk og leggja 8 upp á deildartímabilinu. Son er kominn með 8 mörk og 2 stoðsendingar.
Athugasemdir