Fotbolti.net
26.11.12 - 17:45
Elvar Geir Magnússon

Arnór Ingvi ætlar að spila með Keflavík á næsta ári

Arnór Ingvi Traustason.

Arnór Ingvi Traustason.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Norska liðið Sandnes Ulf náði um helgina að tryggja áframhaldandi veru í norsku úrvalsdeildinni. Þrír Íslendingar léku með liðinu á tímabilinu, þar á meðal Arnór Ingvi Traustason.
Arnór lék með Sandnes á lánssamningi frá Keflavík en hann stefnir á því að leika með Keflavík næsta tímabil.

„Mig langar að komast heim. Þessi lánssamningur bauð upp á það að kynnast þessu umhverfi og sjá hvort ég væri tilbúinn í þetta líf. Mér finnst ég ekki alveg vera tilbúinn og þarf að ég held að þroskast aðeins betur,\" sagði Arnór í viðtali við Víkurfréttir.

Hann telur sig hafa bætt sig sem leikmaður í Noregi.

„Maður er samt að búa einn í fyrsta skipti, í öðru landi líka. Það getur verið þreytandi og erfitt á köflum. Þetta getur tekið alveg svakalega á andlegu hliðina. Ég sakna fjölskyldunnar, vina og kærustunnar og þess sem tengist mér sem er heima.\"

Arnór ætlar að klára stúdentinn á Íslandi og leika með Keflavík áður en stefnan sé sett aftur út í atvinnumennskuna.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.