Körfuboltagoðsögnin Magic Johnson var á meðal þeirra sem minntust Diego Maradona á samfélagsmiðlum í gær.
Maradona lést í gær eftir að hafa, samkvæmt fjölmiðlum í Argentínu, fengið hjartaáfall á heimili sínu.
Maradona er einn besti fótboltamaður sem hefur spilað leikinn fallega. Hann er að margra mati sá allra besti. Hann hjálpaði Argentínu að vinna HM 1986, á móti þar sem hann sýndi sínar allra bestu hliðar.
Magic, sem gerði garðinn frægann með LA Lakers, segir að það hafi verið ein sín besta upplifun í lífinu þegar hann Maradona í Argentínu 1994.
„Heimurinn missti einn besta fótboltamann sem uppi hefur verið, Diego Maradona. Það var eitt það skemmtilegasta í lífi mínu þegar ég hitti hann. Hvíl í friði vinur minn og bænir mínar fara til fjölskyldu hans," skrifaði Magic á Twitter og birti flottar myndir með.
The world lost one of the greatest soccer players that ever lived Diego Maradona. It was one of the thrills of my life when I got to meet him. Rest In Peace my friend and my prayers go out to his family. 🙏🏾 pic.twitter.com/SgQvij7a72
— Earvin Magic Johnson (@MagicJohnson) November 25, 2020
Athugasemdir