Heimild: RÚV
„Þetta var bara karakterssigur, það er alveg hægt að segja það," sagði Berglind Björg Þorvaldsdóttir við RÚV eftir 1-3 endurkomusigur gegn Slóvakíu í dag.
Berglind skoraði jöfnunarmark leiksins eftir um klukkustundar leik. Íslenska liðið hafði átt erfiðan fyrri hálfleik en seinni hálfleikurinn var talsvert betri.
Berglind skoraði jöfnunarmark leiksins eftir um klukkustundar leik. Íslenska liðið hafði átt erfiðan fyrri hálfleik en seinni hálfleikurinn var talsvert betri.
„Algjört andleysi í fyrri hálfleik en svo stigum við upp í seinni hálfleik og unnum góðan sigur."
Berglind var spurð út í komandi leik gegn Ungverjalandi þann 1. desember. Sigur í þeim leik getur tryggt Íslandi sæti í lokakeppni EM í fjórða sinni í röð. Hvað þarf Ísland að gera betur í þeim leik?
„Við þurfum í fyrsta lagi að mæta til leiks. Vinna í veikleikunum, sem við gerðum í dag. Þá tökum við Ungverjaland," sagði Berglind.
Athugasemdir