Fotbolti.net
26.12.18 - 13:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Arnar Steinn verður áfram þjálfari KH (Staðfest)

Arnar Steinn Einarsson.

Arnar Steinn Einarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnar Steinn Einarsson hefur komist að samkomulagi við KH um að þjálfa liðið í 3. deild næsta sumar.

Í september gaf KH út tilkynningu þar sem sagt var að Arnar yrði ekki áfram en eftir að hafa hugsað málið ákvað hann að halda áfram með liðið.
„Eftir að hafa legið aðeins undir feldi í vetur varð ég alltaf spenntari og spenntari að halda áfram með KH," segir Arnar. „Allir þeir sem vinna í kringum KH vilja ýta félaginu áfram og það var sem sannfærði mig endanlega."

Hann hefur þjálfað liðið undanfarin tvö sumur með frábærum árangri. KH var nýliði í 3. deildinni síðasta sumar en Hlíðarendapiltar enduðu í fimmta sæti deildarinnar með 28 stig, aðeins fjórum stigum frá því að komast upp um deild. Liðið var í toppbaráttu allt þar til í síðustu umferð mótsins.

„Tímabilið í fyrra var gott og við viljum byggja ofan á það. Hópurinn er flottur og von er á öflugum liðsauka. Ég er því bjartsýnn og fullur tilhlökkunnar fyrir komandi tímabili."

Farsælt samstarf KH og Vals heldur áfram og verður eflt enn frekar. Efnilegustu leikmenn Vals fá tækifæri til þess að stíga sín fyrstu skref í meistaraflokki hjá KH.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.