27.01.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Ívar Ingimars til Brighton.(Staðfest)
Ívar Ingimarsson leikmaður Wolves hefur verið lánaður til Brighton að því er kemur fram í Morgunblaðinu. Ívar mun vera í mánuð í láni en hann fer þó ekki fyrr en 8.febrúar næstkomandi. Því að þann dag leikur Brighton einmitt gegn Wolves. Ívar spilaði vel í haust með Wolves en er lítið búin að spila eftir að hann gaf kost á sér í vináttulandsleikin gegn Eistlandi 20.nóvember síðastliðinn. Brighton er að rétta úr kútnum í 1.deildinni eftir slaka byrjun en gengi liðsins batnaði þegar að Steve Coppel tók við stjórnvölunum þar á bæ.
