Fotbolti.net
27.01.18 - 15:20
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Mihajlo Jakimoski í Fram (Staðfest)

Hermann Guðmundsson formaður knattspyrnudeildar og Pedro Hipólito, þjálfari, ásamt Jakimoski.

Hermann Guðmundsson formaður knattspyrnudeildar og Pedro Hipólito, þjálfari, ásamt Jakimoski.

Canon

Mynd: Fram

Mihajlo Jakimoski, 22 ára gamall sóknarmaður frá Makedóníu, hefur skrifað undir tveggja ára samning við Fram en þetta segir í tilkynningu frá Safamýrarfélaginu.

Mihajlo á að baki 45 leiki í efstu deild í Makedoníu. Í þessum leikjum hefur hann skorað 5 mörk og átt fjölda stoðsendinga.

Mihajlo hefur lengst af leikið sem kantmaður. Hann er 180 cm á hæð, fljótur og með mikla boltatækni.
Mihajlo er uppalinn hjá hjá Metlurg Skopje og steig sín fyrstu skref í efstu deild með félaginu en lék síðast með liði Teteks Tetovo sem er í B-deildinni í Makedóníu.

Mihajlo verður löglegur með liði FRAM gegn Val í Lengjubikarnum laugardaginn 24. febrúar.

„Knattspyrnudeild Fram býður þennan geðþekka leikmann velkominn í hópinn og telur að hann sé mjög góð viðbót við ungt og efnilegt lið sem Fram teflir fram í Inkasso deildinni í sumar,\" segir í tilkynningunni frá félaginu.

Jakimoski kemur væntanlega að einherju leyti til með að fylla skarð Ivan Bubalo sem yfirgaf Fram eftir síðasta tímabil.

Fram

Komnir:
Heiðar Geir Júlíusson frá Þrótti R.
Mihajlo Jakimoski frá Makedóníu.

Farnir:
Brynjar Kristmundsson í Þrótt V.
Hlynur Örn Hlöðversson í Breiðablik (Var á láni)
Högni Madsen í Þrótt V.
Indriði Áki Þorláksson
Ivan Bubalo
Sigurpáll Melberg Pálsson í Fjölni
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.