27.01.18 - 09:00
Ingólfur Stefánsson
Þrír nýir leikmenn til ÍR (Staðfest)

Mynd: ÍR

Mynd: ÍR
ÍR hefur fengið til sín þrjá leikmenn fyrir baráttuna í Inkasso-deildinni næsta sumar.
Brynjar Óli Bjarnason og Gísli Martin Sigurðsson ganga til liðs við ÍR frá Breiðabliki. Þá kemur Aron Skúli Brynjarsson frá Val.
Leikmennirnir spiluðu allir með ÍR í 3-0 sigri á Þrótti í æfingaleik á þriðjudag. Brynjar og Aron skoruðu báðir í leiknum.
Brynjar og Aron spila báðir sem framherjar en Gísli er miðjumaður. Allir eru þeir fæddir árið 1998.

Leikmennirnir eru komnir með leikheimild hjá ÍR og gætu spilað gegn Val í Reykjavíkurmótinu á morgun.

Mynd: ÍR