Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 27. janúar 2020 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
England í dag - Arsenal heimsækir Bournemouth
Mynd: Getty Images
Síðasti leikur helgarinnar í enska boltanum fer fram í kvöld, þegar Bournemouth tekur á móti Arsenal í úrvalsdeildarslag í bikarnum.

Fjörug helgi er að baki þar sem nokkuð óvænt úrslit áttu sér stað. Lærisveinar Eddie Howe eru að mæta Arsenal á erfiðum tíma fyrir Lundúnafélagið og því hægt að búast við hörkuleik.

Liðin eru að mætast í 32-liða úrslitum og fer drátturinn í 16-liða úrslit fram í kvöld, fyrir upphafsflaut leiksins í Bournemouth.

Bæði lið hafa verið að spila undir getu á tímabilinu og skilja sjö stig liðin að í ensku úrvalsdeildinni, þar sem Arsenal er um miðja deild og Bournemouth í fallsæti.

Leikur kvöldsins:
20:00 Bournemouth - Arsenal
Athugasemdir
banner
banner
banner