Nicolas Pepe hefur átt nokkuð erfitt uppdráttar frá því hann gekk í raðir Arsenal sumarið 2019 fyrir metfé. Hann var keyptur frá Lille í Frakklandi fyrir 72 milljónir punda.
Með svo stórum verðmiða kemur aukin pressa og Pepe hefur hingað til ekki staðið undir verðmiðanum - langt því frá.
Með svo stórum verðmiða kemur aukin pressa og Pepe hefur hingað til ekki staðið undir verðmiðanum - langt því frá.
Hann átti hins vegar góðan leik í gær þegar Arsenal bar sigur úr býtum gegn Southampton.
„Hann var mjög góður aftur. Hann skapaði stór augnablik. Hann átti skilið að fá tækifæri og hann nýtti það vel," sagði Mikel Arteta, stjóri Arsenal, um Pepe eftir leikinn.
Hinn 25 ára gamli Pepe sýndi virkilega flott tilþrif í leiknum sem má sjá að neðan. Þar fór hann illa með varnarmenn Southampton og tókst honum að klobba tvo þeirra.
Pepe’s Double Nutmeg! 🥜🔥 pic.twitter.com/aoy7Nm5wg3
— 𝗗𝗮𝘃𝗲 (@xDaveAFC) January 26, 2021
Athugasemdir