Fotbolti.net
27.02.22 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

KV fær tvo til viðbótar úr KR (Staðfest)

Valdimar Daði leikur með KV í sumar.

Valdimar Daði leikur með KV í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
KV, sem leikur í Lengjudeildinni í sumar, hefur bætt tveimur leikmönnum við hóp sinn fyrir komandi tímabili.
Báðir koma þeir á láni frá venslafélaginu KR, sem leikur auðvitað í efstu deild.

Leikmennirnir sem um ræðir eru Jökull Tjörvason og Valdimar Daði Sævarsson.

Jökull er 17 ára gamall og lék hann sjö leiki með KV þegar liðið komst upp úr næst efstu deild í fyrra. Valdimar er 19 ára miðjumaður sem spilaði einnig með KV í fyrra. Hann lék 21 leik og skoraði fjögur mörk.

Þeir eru ekki fyrstu leikmennirnir sem fara þarna á milli frá því síðasta tímabili lauk. KV hefur fengið nokkra efnilega leikmenn úr KR eins og sjá má með því að smella hérna og hérna.

Þetta er frábært tækifæri fyrir KR að þessir ungu leikmenn munu fá reynslu í næst efstu deild.

Þess má geta að Sigurvin Ólafsson, aðstoðarþjálfari karlaliðs KR, stýrir skútunni hjá KV.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.