Liverpool vill Olise - Sancho eða Rashford - Stór nöfn orðuð við Arsenal
   fös 27. mars 2026 14:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hin hliðin - Ingimar Stöle (Valur)
Mynd: Valur
Klár í að leysa vandamálin.
Klár í að leysa vandamálin.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Nusa erfiður.
Nusa erfiður.
Mynd: EPA
Flottir í klefanum.
Flottir í klefanum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stutt í glensið hjá Kára.
Stutt í glensið hjá Kára.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Velkominn á Hliðarenda.
Velkominn á Hliðarenda.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lítur hættulega út en er næs gæi.
Lítur hættulega út en er næs gæi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Buzzcut Biddi (TM)
Buzzcut Biddi (TM)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ingimar Stöle lék sína fyrstu meistaraflokksleiki á Íslandi árið 2023 en þá kom hann frá norska félaginu Viking til KA. Hann var í þrjú tímabil fyrir norðan og lék bæði í bakverðinum og á kantinum. Hann samdi svo við Val í vetur.

Ingimar á að baki fimm leiki fyrir íslensku yngri landsliðin og æfði með Fjölni þegar hann var yngri. Í dag sýnir hann á sér hina hliðina.

Fullt nafn: Ingimar Torbjørnsson Støle

Gælunafn: Oftast Stöle hér á landi, Ingi heima í Noregi

Aldur: 21

Hjúskaparstaða: Á lausu

Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki og er eitthvað minnisstætt úr leiknum: Ég fékk hálftíma í æfingaleik með Viking á móti Bodø/Glimt 2023, töpuðum 1-0

Uppáhalds drykkur: Pepsi Max

Uppáhalds matsölustaður: Snaps

Uppáhalds tölvuleikur: Var oft í Fortnite en það eru nokkur ár síðan

Áttu hlutabréf eða rafmynt: Hef átt í norsku olíunni í smá tíma

Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Clarksons Farm er klárlega númer 1, annars er ég mjög hrifinn af Severance

Uppáhalds tónlistarmaður: Er útum allt í tónlistinni en örugglega Karpe

Uppáhalds hlaðvarp: Gutta Backer, norskir snillingar

Uppáhalds samfélagsmiðill: Nota eiginlega bara Instagram

Fyrsta síðan sem þú ferð á þegar þú opnar netið: þessa dagana er það oftast Claude.ai

Fyndnasti Íslendingurinn: Kári Gautason er fyndnasti maður sem ég hef kynnst

Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: «hringdu í mig þegar þú getur»

Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Keflavík

Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Var í vandræðum með Antonio Nusa

Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Manuel Hervas var geggjaður

Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Var leikmaður hjá Ungverjum sem var alltaf að reyna að hrækja á mig. Man ekki eftir nafninu en það var óþolandi og erfitt að dodga það allan leikinn.

Hver var fyrirmyndin þín í­ æsku: Fernando Torres þegar hann var í Liverpool

Sætasti sigurinn: 5-1 sigurinn á ÍA í haust. Falleg mörk og skemmtilegur leikur

Mestu vonbrigðin: Að ná ekki að klifra ofar á töflunni í fyrra var mjög svekkjandi

Uppáhalds lið í enska: Liverpool að sjálfsögðu

Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Þá tæki ég Danna Hafsteins á miðjuna takk.

Efnilegasti fótboltamaður/kona landsins: Snorri Kristinsson

Fallegasti fótboltamaðurinn á Íslandi: Það var Biddi Snær þangað til að hann ákvað að fara í buzzcut

Fallegasta fótboltakonan á Íslandi: Leýndarmál..

Besti fótboltamaðurinn frá upphafi: Lionel Messi

Ein regla í fótbolta sem þú myndir breyta: Mér finnst það of auðvelt fyrir suma að sækja sér aukaspyrnur með því að henda sér niður og öskra

Uppáhalds staður á Íslandi: Árskortið í Skógarböðunum var mjöög mikið notað.

Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: það var leikmaður sem ég spilaði með í akademíunni sem var heyrnarskertur og notaði heyrnartæki. Í einum leik var mikil rigning og þá hafði hann slökkt á heyrnartækinu án þess að segja okkur liðsfélögum frá því. Við öskruðum á hann allan leikinn og skildum ekkert af hverju hann var ekkert að pæla í hvað við vorum að segja. Frústrerandi í leiknum, en frekar fyndið eftir á.

Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: nei ekkert svoleiðis

Fyrir utan fótbolta, fylgist þú með öðrum íþróttum: Ég fylgist með norsku og íslensku landsliðunum þegar stórmót eru, annars bara fótbolti.

Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Nike vapor

Í hverju varstu/ertu lélegastur í­ skóla: Var í bókhaldsáfanga í fyrra, það gekk alls ekki vel.

Vandræðalegasta augnablik: Fyrsta skiptið sem ég var valinn í landsliðið ætlaði ég að æfa þjóðsönginn (sem ég á þessum tíma kunni ekki) fyrir framan spegilinn. Hélt ég væri einn heima þangað til að hún sem þreif heima hjá okkur stóð glottandi fyrir aftan mig.

Hvaða þremur leikmönnum byðir þú í mat og af hverju: Dagur Orri, Stefán Gísli og Birkir Jakob. Toppmenn.

Bestur/best í klefanum og af hverju: Erfitt val en hef mjög gaman af Jónatani Inga og Hödda

Hvern í liðinu þínu myndirðu velja til að taka þátt í sjónvarpsþáttaröð: Myndi henda Stefáni Gísla í Taskmaster, kenna honum að problemsolva aðeins betur

Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Ég er örvhentur

Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Jakob Snær í KA. Lítur pínu hættulegur út með sleeve-tattoo, en er mest næs gæi í heimi

Hverju laugstu síðast: Sagði við konu á kaffihúsi í Lissabon fyrir rúmri viku síðan að ég héti Rob að því ég vissi að hún myndi ekki ná að segja Ingimar.

Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: Vorum í hlaupatesti áðan, það var ekki mjög gaman.

Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: Þá myndi ég spyrja Xabi Alonso hvort það væri ekki kominn tími til að taka við

Einhver skilaboð til stuðningsmanna fyrir sumarið: Hlakka til að sjá alla á vellinum, það verður veisla að vera Valsari í sumar!
Slapp
Athugasemdir
banner
banner