Liverpool vill Olise - Sancho eða Rashford - Stór nöfn orðuð við Arsenal
   fös 27. mars 2026 21:58
Elvar Geir Magnússon
Mögulegt byrjunarlið Íslands - Fyrirliðinn snýr aftur
Eimskip
Orri Steinn á keppnisvellinum í Toronto.
Orri Steinn á keppnisvellinum í Toronto.
Mynd: KSÍ
Kanada og Ísland mætast á morgun klukkan 17:00 að íslenskum tíma. Um er að ræða vináttulandsleik sem fram fer í Toronto en á sama velli mun Ísland etja kappi við Haítí á þriðjudaginn.

Reiknað er með um 25-30 þúsund manns á Toronto leikvanginn á morgun en hann verður notaður á HM í sumar.

Það er nær ómögulegt að lesa í hvað Arnar Gunnlaugsson er að hugsa og spennandi að sjá hvernig byrjunarliðið verður á morgun.

Hann mun allavega geta notað hópinn vel en átta skiptingar eru leyfðar.

Hér sjáum við mögulegt byrjunarlið Íslands, sem er sett saman til gamans. Orri Steinn Óskarsson fyrirliði er kominn í hópinn aftur og mun væntanlega leiða sóknarlínuna.

Kanada er í 29. sæti heimslistans en Ísland í 74. sæti. Leikurinn á morgun verður að sjálfsögðu í beinni textalýsingu hér á Fótbolta.net.


Arnar á keppnisvellinum: Leikstíll sem er ekki allra
Orri um andlega áskorun: Einn af fáum jákvæðum punktum úr þessu
Slapp
Athugasemdir
banner