Linda Líf Boama, leikmaður sænska liðsins Kristianstad, var í dag valinn í A-landsliðshópinn í fyrsta sinn. Hún verður í hópnum sem kemur saman í næsta mánuði og mætir Úkraínu og Englandi í tveimur leikjum á Laugardalsvelli.
Linda á að baki 12 leiki fyrir yngri landsliðin og hélt til Svíþjóðar eftir síðasta tímabil eftir að hafa skorað átta mörk í Bestu deildinni með Víkingi.
Linda á að baki 12 leiki fyrir yngri landsliðin og hélt til Svíþjóðar eftir síðasta tímabil eftir að hafa skorað átta mörk í Bestu deildinni með Víkingi.
„Linda Líf er áhugaverður leikmaður, var í svolítinn tíma í meiðslabasli, fengið höfuðhögg og annað. Ég er búinn að fylgjast með henni í nokkur ár og í fyrsta skiptið núna síðastliðinn tvö ár hefur hún náð góðri samfellu í bæði undirbúningstímabil og tímabil. Í framhaldinu af því fer hún út (til Svíþjóðar) sem er bara jákvætt fyrir hana. Mér fannst tilvalið tækifæri til að skoða hana," sagði Þorsteinn Halldórsson, þjálfari landsliðsins, á fréttamannafundi í dag.
„Ég hugsa hana sem senter," sagði Steini þegar hann var spurður út í stöðu á vellinum.
Linda er 24 ára og hefur leikið með Þrótti, Víkingi og Kristianstad á sínum ferli.
Athugasemdir

