Fotbolti.net
27.03.26 - 22:40
Ívan Guðjón Baldursson

Vináttulandsleikur: Ben White skoraði og gaf víti

Vináttulandsleikur: Ben White skoraði og gaf víti
Canon

Mynd: EPA

England 1 - 1 Úrúgvæ
1-0 Ben White ('81)
1-1 Federico Valverde ('94, víti)
Það var mikið af vináttulandsleikjum sem fóru fram víða um heim fyrr í kvöld þar sem afar tilraunakennt byrjunarlið Englands gerði jafntefli við Úrúgvæ á Wembley.

England stjórnaði ferðinni gegn Úrúgvæ en staðan var markalaus eftir tíðindalítinn fyrri hálfleik.

Leikurinn hélt áfram í svipuðu fari í síðari hálfleik nema að heimamenn sköpuðu sér nokkur góð marktækifæri sem fóru forgörðum, áður en Ben White kom boltanum í netið eftir hornspyrnu á lokakaflanum.

Harvey Barnes náði snertingu á boltann og potaði White honum innfyrir marklínuna af stuttu færi til að taka forystuna fyrir England á 81. mínútu.

Þegar komið var í uppbótartíma lögðu Úrúgvæjar meiri kraft í sóknarleikinn en Englendingar gáfu ekki færi á sér fyrr en undir lokin, þegar White, sem kom sem stormsveipur inn af bekknum á 69. mínútu, gerðist sekur um brot innan vítateigs í baráttunni um boltann.

Federico Valverde, varafyrirliði Real Madrid, steig á vítapunktinn og skoraði jöfnunarmarkið fyrir Úrúgvæ. Þetta var eina marktilraun Úrúgvæ sem hæfði rammann í leiknum og urðu lokatölur 1-1.

England spilar næst við Japan á þriðjudaginn áður en liðið á leiki við Nýja-Sjáland og Kosta Ríka í júní, sem verða síðustu leikirnir fyrir HM.

Byrjunarlið Englands: Trafford, Livramento, Tomori, Maguire, Spence, Henderson, Garner, Madueke, Foden, Rashford, Solanke
Komu inn af bekknum: Bowen, Wharton, Palmer, Calvert-Lewin, Barnes, Mainoo, Hall, White
Vináttulandsleikur: Ben White skoraði og gaf víti
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.