Fotbolti.net
27.04.18 - 22:36
Ingólfur Stefánsson

Pálmi Rafn: Gerum ein helvítis mistök

Auglýsing
Pálmi fagnar marki sínu.

Pálmi fagnar marki sínu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur og KR mættust í fyrstu umferð Pepsi deildar karla í kvöld. Leiknum lauk með dramatískum sigri Vals 2-1 en Tobias Thomsen skoraði sigurmark leiksins á 94. eftir að Pálmi Rafn Pálmason hafði jafnað metinn fyrir KR mínútu áður.
Pálmi Rafn var vonsvikinn í leikslok. Hann sagði að tilfinningin í leikslok væri súr.

„Eins og það var gott að ná jöfnunarmarkinu þá er þetta helvíti leiðinlegt\"

Eins og kemur fram hér að ofan þá leið ekki mikill tími frá því að Pálmi Rafn jafnaði og að Tobias Thomsen skoraði sigurmarkið.

„Það er ekkert sem gerist nema bara við náum ekki að verjast. Það mark var svekkjandi en það er fyrra markið sem pirrar mig.\"

„Við erum búnir að loka á þá alveg fram að því og gerum ein helvítis mistök og þeir skora.\"


Pálmi segir að líkt og í leik liðanna á síðasta tímabili þá hefðu KR-ingar átt skilið meira úr leiknum.

„Við komum öðruvísi inn í þennan leik en í fyrra og þeir skapa ekki eitt einasta færi fyrr en þeir skora þetta mark. Þeir eru fljótir að refsa, þetta er gott lið.\"

„Mér hefði fundist jafntefli sanngjörnustu úrslitin. Þetta er sterkt lið sem við erum að spila við og þetta hefði verið sterkt stig fyrir okkur en þetta eru náttúrulega mjög sterk stig fyrir þá að ná sigri á móti okkur.\"


Viðtalið við Pálma má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.