Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 27. apríl 2021 22:35
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Carragher: Held við séum búin að gleyma hversu góður Hazard var
Hazard kom inn á sem varamaður í kvöld
Hazard kom inn á sem varamaður í kvöld
Mynd: EPA
Pulisic skoraði
Pulisic skoraði
Mynd: EPA
„Hann er alvöru leikmaður, mjög hæfileikaríkur og ég hef mikla trú á honum. Ég hef trú á því að hann geti orðið jafn góður og Eden Hazard, svo mikla trú hef ég á honum," sagði Micah Richards á CBS Sports í kvöld.

Hann, Jamie Carragher og Roberto Martinez ræddu um leik Chelsea og Real Madrid í kvöld. Pulisic skoraði mark Chelsea í leiknum og Eden Hazard kom við sögu hjá Real Madrid. Hazard hefur mikið verið meiddur frá komu sinni til Real sumarið 2019 en hann kom frá Chelsea.

„Hann var leikmaðurinn sem Chelsea vildi fá til að koma í stað Hazard. Þeir borguðu mikið fyrir hann og þetta var alltaf að fara taka smá tíma að aðlagast. Hann kom mér á óvart í kvöld. Ég sá hann alltaf fyrir mér úti vinstra megin en hann var mjög flottur hægra megin. Hann var sá leikmaður sem kom Real hvað mest á óvart," sagði Martinez.

„Ég er mikill aðdaándi en ég sé hann ekki ná sömu hæðum og Hazard. Hazard var besti leikmaður úrvalsdeildarinnar í fjögur ár. Mér fannst hann besti leikmaðurinn á HM 2018. Ég er ekki að gera lítið úr Pulisic, ég þarf að skoða Twitter samt eftir þátt."

„Ég held að við séum búin að gleyma hversu góður Hazard var. Og ég segi var því við erum að bíða eftir því að hann sýni sitt gamla form aftur. Hann var uppáhalds leikmaðurinn minn í deildinni og það er mikið til ætlast til að Pulisic verði besti leikmaður deildarinnar. Hann gæti átt góðan feril með Chelsea en ekki gleyma því hversu góður Hazard var,"
sagði Carragher.


Athugasemdir
banner
banner
banner