Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
sunnudagur 31. maí
Besta karla
Vináttulandsleikur
fimmtudagur 21. maí
þriðjudagur 5. maí
mánudagur 4. maí
Lengjudeild karla
laugardagur 2. maí
Besta karla
Lengjudeild kvenna
Besta karla
föstudagur 29. maí
Vináttuleikur
Íran 3 - 1 Gambía
Mexico U-17 0 - 0 England U-17
Andorra 0 - 1 Iraq
Suður-Afríka 0 - 0 Nicaragua
Bosnía 0 - 0 Norður Makedónía
Lebanon 0 - 0 Sudan
Eliteserien
Aalesund 2 - 2 Ham-Kam
Fredrikstad 2 - 1 Start
KFUM Oslo 0 - 0 Tromso
Rosenborg 2 - 2 Bodö/Glimt
SK Brann 1 - 2 Sarpsborg
Valerenga 3 - 1 Kristiansund
Toppserien - Women
Honefoss W 1 - 2 Stabek W
Elitettan - Women
Ekkert mark hefur verið skorað
0 2 ('5)
1 2 ('25)
fim 27.apr 2023 14:00 Mynd: Hrefna Morthens
Magazine image

Spá þjálfara og fyrirliða fyrir Lengjudeildina: 10. sæti

Fótbolti.net kynnir liðin sem leika í Lengjudeildinni í sumar eitt af öðru eftir því hvar þeim er spáð. Við fengum alla fyrirliða og þjálfara í deildinni til að spá fyrir sumarið og fengu liðin stig frá 1-11 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði.

Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. ?
9. ?
10. Selfoss, 70 stig
11. Þróttur R., 58 stig
12. Ægir, 27 stig

10. Selfoss
Eitt af þessum liðum sem gæti orðið algjört jójó; getur unnið alla en líka tapað gegn öllum. Deano lætur sitt lið spila gríðarlega kraftmikinn leik og reynir að hlaupa andstæðinginn í kaf, ungu strákarnir ráða vel við það en svo þurfa hlutirnir að falla með þeim. Selfoss er ekki eitt af gæðamestu liðunum þrátt fyrir að hafa Gary og Gonza, en þeir hafa klárlega eitt af ferskustu og kraftmestu liðunum. Ef hlutirnir smella þarf Selfoss ekki að hafa neinar áhyggjur, en það gæti fljótt farið að halla undan fæti ef illa fer að ganga.



Þjálfarinn: Dean Martin er fimmtugur Englendingur sem tók við þjálfun Selfoss um mitt tímabilið 2018. Hann er á leið í sitt fimmta heila tímabil á Selfossi. Deano kom fyrst til Íslands árið 1995 og lék með KA, ÍA og ÍBV sem leikmaður.



Styrkleikar: Ungt og gríðarlega sprækt lið með ofboðslega mikla hlaupagetu og vinnusemi ásamt gríðarlegum gæðum í Gary Martin og Gonzalo Zamorano. Blanda sem gæti svínvirkað og sér Dean Martin algjörlega til þess að sitt lið sé í toppstandi til þess að reyna að hlaupa yfir andstæðinga sína.


Mikill hraði í Gonza

Veikleikar: Mjög þunnur hópur, má lítið út af bregða hjá Selfyssingum til þess að þeir þurfi að fara að kafa djúpt eftir leikmönnum. Margir ungir leikmenn helst oft í hendur við óstöðugleika í frammistöðum, hafa misst marga af reynslumeiri og betri leikmönnum liðsins eins og Þorstein Daníel, Adam Örn og Þormar sem dæmi og með þeim fara ekki bara reynsla og gæði heldur stórir og miklir karakterar einnig.

Lykilmenn: Sóknarmennirnir Guðmundur Tyrfingsson, Gary Martin og Gonzalo Zamorano. Ógnvekjandi tríó sem öll lið horfa á að þurfa að stoppa.


Fyrirliðinn Guðmundur Tyrfingsson

Fylgist með: Stefán Þór Ágústsson
Ungur og gríðarlega spennandi markvörður sem hefur fengið traustið síðustu ár og fer sífellt vaxandi. Það hefur vantað stöðugleika en gæti orðið algjör lykilmaður hjá Selfossi í sumar ef hann helst meiðslalaus, en meiðsli hafa verið að plaga hann í vetur. Lið úr efstu deild hafa verið að fylgjast með honum að undanförnu.


Spennandi markvörður

Komnir
Adrian Sanchez frá Víkingi Ó.
Albert Hatilov frá Úkraínu
Hrannar Snær Magnússon frá KF
Oskar Wasilewski frá Kára


Oskar kom í vetur

Farnir
Adam Örn Sveinbjörnsson
Atli Rafn Guðbjartsson í Ægi
Danijel Majkic
Hrvoje Tokic í Ægi
Jökull Hermannsson
Þorsteinn Daníel Þorsteinsson í Árborg

Líklegt byrjunarlið


Fyrstu þrír leikir Selfoss:
5. maí, Selfoss - Afturelding (JÁVERK-völlurinn)
12. maí, Leiknir R. - Selfoss (Domusnovavöllurinn)
21. maí, Selfoss - Fjölnir (JÁVERK-völlurinn)
banner