Fimmta árið í röð er harðfiskvinnslan Eyjabiti aðalstyrktaraðili Draumaliðdeildarinnar í Pepsi Max-deild karla. Draumaliðsdeildin er rekin af Fóbolta.net í samstarfi við Íslenskan toppfótbolta eins og síðustu ár en þetta er níunda árið í röð sem keppt er í Draumaliðsdeildinni.
Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!
Leikurinn í stuttu máli
Þú færð 100 milljónir króna til að kaupa 15 leikmenn úr Pepsi-deildinni. Leikmennirnir fá síðan stig fyrir frammistöðu sína á vellinum en mörg atriði eru tekin inn í reikninginn í stigagjöfinni.
Á síðunni er einnig boðið upp á sérstakar einkadeildir þar sem hægt er að keppa við vini og félaga og bera saman árangurinn.
Athugið að ekki hægt er að nota sama notendanafn og í fyrra. Fólk þarf að skrá sig upp á nýtt í ár.
Taktu þátt og sýndu snilli þína í að velja lið, þátttaka er að sjálfsögðu ókeypis!
Áætlað er að Pepsi Max-deildin hefjist 13 eða 14. júní og spennan fyrir mótinu eykst með hverjum deginum.
Á síðunni er einnig boðið upp á sérstakar einkadeildir þar sem hægt er að keppa við vini og félaga og bera saman árangurinn.
Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!
Stórglæsileg verðlaun
Eyjabiti er aðalstyrktaraðili leiksins líkt og undanfarin ár. Eyjabiti er harðfiskvinnsla sem er staðsett á Grenivík.
Þjálfari stigahæsta liðsins í Draumaliðsdeildinni í lok móts fær ferð fyrir tvo á leik í enska boltanum með VITA Sport sem og harðfisk frá Eyjabita.
Eyjabiti gefur einnig reglulega harðfisk fyrir stigahæstu umferðirnar í sumar. Besti harðfiskur sem völ er á!
Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!
Athugasemdir