27.07.26 - 23:09
Víðir Sigurðsson
Víðir Sig: Áfangar í stóru tapi - Gylfi hækkar og jákvætt fyrir Aron að spila ekki
Birnir Snær Ingason náði stórum áfanga í 16. umferð Bestu deildar karla og Andri Rúnar Bjarnason skoraði sögulegt mark en því miður fyrir þá báða fékk Stjarnan annan stóran skell.
Gylfi Þór Sigurðsson klifrar upp listann yfir leikjahæstu Íslendingana og Aron Einar Gunnarsson bætti sína stöðu þrátt fyrir að hann spilaði ekki með Þór gegn KA.
Hermann Hreiðarsson, Elfar Árni Aðalsteinsson, Arnór Guðjohnsen og Hjörtur Júlíus Hjartarson koma allir við sögu í pistli 16. umferðar.
Úrslitin í 16. umferð:
Víkingur - Keflavík 5-1
Fram - FH 0-0
ÍA - Stjarnan 5-1
Breiðablik - ÍBV
KA - Þór
Leikur KR og Vals fór fram 26. maí.
Staðan: Víkingur 43, KR 35, Fram 34, Breiðablik 26, Valur 19, Keflavík 19, ÍA 18, ÍBV 16, Stjarnan 15, KA 14, FH 13, Þór 11.

Birnir lék 200. leikinn
Birnir Snær Ingason, sóknarmaður Stjörnunnar, lék sinn 200. leik í efstu deild hér á landi í gærkvöld þegar Garðabæjarliðið sótti Skagamenn heim. Birnir hefur leikið alla 16 leiki Stjörnunnar í deildinni í ár en hann lék áður 64 leiki með Fjölni, 10 leiki með Val, 47 leiki með HK, 51 leik með Víkingi R., og svo 12 leiki með KA þegar hann kom til Akureyrarfélagsins á miðju síðasta tímabili. Á milli þess sem Birnir lék með Víkingi og KA spilaði hann 31 leik með Halmstad í sænsku úrvalsdeildinni.
Gylfi kominn upp fyrir Kára
Gylfi Þór Sigurðsson er einn í tíunda sætinu yfir leikjahæstu Íslendingana í deildakeppni eftir að hafa spilað með Víkingi í sigrinum á Keflavík, 5-1, á föstudagskvöldið. Hann er þar með kominn með 478 deildaleiki á ferlinum og fór fram úr Kára Árnasyni, yfirmanni knattspyrnumála hjá Víkingi, sem lék 477 leiki. Gylfi á möguleika á að komast upp um tvö sæti til viðbótar á listanum áður en þessu keppnistímabili lýkur.
Aron á góða möguleika á metinu
Ekkert varð af því að Aron Einar Gunnarsson léki með Þór gegn KA í kvöld en þar hefði hann leikið sinn 512. leik og jafnað við þá Hermann Hreiðarsson og Birki Má Sævarsson sem nú sitja í þriðja og fjórða sætinu á listanum yfir þá leikjahæstu.
Aron er búinn að semja við Qatar SC í Katar og á nú alla möguleika á að slá leikjamet Arnórs Guðjohnsens á komandi vetri en Arnór lék 523 leiki á sínum tíma og hefur verið leikjahæsti knattspyrnumaður Íslands frá síðustu aldamótum. Ef Aron hefði leikið áfram með Þór út tímabilið hefði hann aðeins átt möguleika á að jafna met Arnórs á þessu ári.
Andri skoraði 130. markið
Andri Rúnar Bjarnason, sóknarmaðurinn þrautreyndi hjá Stjörnunni, skoraði sitt 130. mark í íslensku deildakeppninni þegar hann gerði eina mark liðsins í stórtapinu gegn ÍA á Akranesi, 5-1. Andri hefur skorað ríflega helminginn, 61 mark, í efstu deild og síðan 22 mörk í 1. deild, 27 í 2. deild og 20 í 3. deild.
Hann er þriðji leikmaðurinn sem skorar sitt 130. mark í deildakeppninni á þessu tímabili en hinir eru Viktor Jónsson úr ÍA og Elfar Árni Aðalsteinsson sem leikur með Völsungi í 1. deild. Einn enn sem leikur á Íslandsmótinu í ár hefur náð þessu en það er Patrick Pedersen, markakóngur efstu deildar, sem hefur skorað 134 mörk, öll fyrir Val.
Þá er Andri Rúnar sá 20. frá upphafi sem skorar 130 mörk í deildakeppninni en markametið á Skagamaðurinn Hjörtur Júlíus Hjartarson sem skoraði 223 mörk á árunum 1994 til 2022.
Markús og Óskar bættu við mörkum
Markús Páll Ellertsson úr ÍA og Óskar Borgþórsson úr Víkingi skutu sér ofar á markalista deildarinnar en þeir eru báðir komnir með 9 mörk og deila þriðja til sjötta sætinu. Aron Sigurðarson og KR-ingar áttu frí og Elías Már Ómarsson spilar ekki meira með Víkingi vegna meiðsla.
Markahæstir:
16 mörk: Aron Sigurðarson (KR).
12 mörk: Elías Már Ómarsson (Víkingi).
9 mörk: Eiður Gauti Sæbjörnsson (KR), Kristófer Ingi Kristinsson (Breiðabliki), Markús Páll Ellertsson (ÍA), Óskar Borgþórsson (Víkingi).
8 mörk:
7 mörk: Atli Þór Jónasson (Fram), Emil Atlason (Stjörnunni), Gylfi Þór Sigurðsson (Víkingi), Hallgrímur Mar Steingrímsson (KA), Kennie Chopart (Fram), Stefan Ljubicic (Keflavík), Tryggvi Hrafn Haraldsson (Val).
6 mörk: Andri Rúnar Bjarnason (Stjörnunni), Arnór Ingvi Traustason (KR), Luke Rae (KR), Viktor Jónsson (ÍA).
5 mörk: Ágúst Eðvald Hlynsson (Þór), Ágúst Orri Þorsteinsson (Breiðabliki), Helgi Guðjónsson (Víkingi), Omar Sowe (ÍBV), Valdimar Þór Ingimundarson (Víkingi).
4 mörk: Amin Cosic (KR), Aron Elís Þrándarson (Víkingi), Benedikt V. Warén (Stjörnunni), Birgir Baldvinsson (KA), Freyr Sigurðsson (Fram), Gils Gíslason (FH), Lúkas Logi Heimisson (Val), Róbert Elís Hlynsson (ÍBV), Tómas Orri Róbertsson (FH), Örvar Eggertsson (Stjörnunni).
Næstu leikir:
Sautjánda umferðin er leikin dagana 1. til 5. ágúst og þar mætast, með fyrirvara um breytingar vegna Evrópuleikja:
1.8. kl. 14.00: ÍBV - Fram
4.8. kl. 18.30: Þór - Breiðablik
4.8. kl. 19.15: ÍA - Víkingur (óvíst)
4.8. kl. 19.15: Valur - Stjarnan (óvíst)
5.8. kl. 18.00: Keflavík - KA
5.8. kl. 19.15: FH - KR