27.08.12 - 13:16
Daníel Freyr Jónsson
Luka Modric til Real Madrid (Staðfest)

Luka Modric.

Mynd: Getty Images

Luka Modric.

Mynd: Getty Images
Luka Modrid er genginn í raðir Real Madrid frá Tottenham og er hann fyrstu kaup spænsku meistarana í sumar.
Króatinn stóðst læknisskoðun fyrr í dag og skrifar hann undir fimm ára samning hjá Real, sem hefur verið á höttunum á eftir honum í allt sumar.
Modric hefur verið lykilleikmaður í liði Tottenham undanfarin ár og lék hann 159 leiki með félaginu og skoraði þar 17 mörk.
Hann hóf atvinnumannaferil sinn með Dinamo Zagreb í heimalandi sínu, en Tottenham keypti hann þaðan árið 2008 og borgaði fyrir hann 16,5 milljónir punda.
Kaupverðið núna hefur ekki verið gefið upp, en það er þó talið nema á milli 25-30 milljónum punda, og er hann nú dýrasti Króati sögunnar.

Heimild: Heimasíða Real Madrid