Fotbolti.net
27.08.12 - 13:32
Magnús Már Einarsson

Guðlaugur Victor til NEC Nijmegen (Staðfest)

Guðlaugur Victor til NEC Nijmegen (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðlaugur Victor Pálsson hefur gengið til liðs við hollenska félagið NEC Nijmegen á láni frá New York Red Bulls.
Guðlaugur Victor verður á láni hjá Nijmegen út tímabilið en hollenska félagið á síðan möguleika á að kaupa hann næsta sumar.

,,Það er fínt fyrir mig að fara í úrvaldsdeildina í Hollandi. Það er nýtt fyrir mig og vonandi mun ég fá að spila og standa mig vel þar,\" sagði Guðlaugur Victor við Fótbolta.net í dag.

Guðlaugur Victor gekk til liðs við New York Red Bulls í febrúar en hann hefur leikið 17 leiki með liðinu í MLS deildinni í ár.

Þessi 21 árs gamli leikmaður hefur einnig verið á mála hjá Hibernian, Liverpool, AGF og Dagenham & Redbridge á atvinunmannaferli sínum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.