Fotbolti.net
27.08.18 - 16:58
Magnús Már Einarsson

Daniel Tristan Guðjohnsen í Real Madrid (Staðfest)

Daniel Tristan Guðjohnsen í Real Madrid (Staðfest)
Canon

Mynd: Total Football

Daniel Tristan Guðjohnsen hefur gengið til liðs við spænska stórliðið Real Madrid en þar mun hann leika í yngri liðunum.

Hann fetar þar með í fótspor stóra bróður Andra Lucas Guðjohnsen sem samdi við Real Madrid á dögunum.

Andri Lucas er fæddur árið 2002 en Daniel Tristan er fæddur árið 2006.

Andri Lucas og Daniel Tristan hafa lengi búið í Barcelona en faðir þeirra Eiður Smári Guðjohnsen spilaði þar frá 2006 til 2009.
Þeir eru nú fluttir til Madrid þa sem þeir munu spila með yngri liðum Real Madrid

Eldri bróðir þeirra Sveinn Aron Guðjohnsen samdi í sumar við Spezia í Serie B á Ítalíu eftir að hafa verið á mála hjá Breiðabliki, Val og HK undanfarin ár.

Daniel Tristan Gudjohnsen (2006) has moved to Real Madrid and will play there like his older brother, Andri Lucas Gudjohnsen. Their oldest brother, Sveinn Gudjohnsen, is playing for Spezia and their uncle, Arnor Borg Gudjohnsen for Swansea. Impressive family! #TeamTotalFootball pic.twitter.com/ygRqgamGvF

— Total Football (@totalfl) August 27, 2018

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.