Fotbolti.net
27.09.12 - 17:00
Magnús Már Einarsson

Jermaine Jenas til Nottingham Forest (Staðfest)

Jermaine Jenas til Nottingham Forest (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Nottingham Forest hefur fengið miðjumanninn Jermaine Jenas á láni en samningurinn gildir í einn mánuð.

Jenas hóf feril sinn hjá Nottingham Forest en hann fór frá félaginu til Newcastle árið 2002.
Þessi 29 ára gamli leikmaður hefur ekki náð að festa sig í sessi hjá Tottenham undanfarin ár.

Á síðasta tímabili var Jenas í láni hjá Aston Villa og nú er hann farinn til Nottingham Forest.

Jenas mun væntanlega koma beint inn í leikmannahóp Nottingham Forest fyrir nágrannaslaginn gegn Derby um helgina.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.