27.09.17 - 12:16
Elvar Geir Magnússon
Willum í framboð - Hættir með KR (Staðfest)

Willum hættir þjálfun KR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Willum hættir þjálfun KR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Willum Þór Þórsson hefur ákveðið að bjóða sig fram í 1. sæti í Suðvesturkjördæmi fyrir Framsóknarflokkinn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá honum.
WIllum lætur því af störfum sem þjálfari KR eftir tímabilið.

KR-ingar náðu ekki að standa undir væntingum í sumar og er ljóst fyrir lokaumferð deildarinnar, þar sem KR mætir Stjörnunni á laugardag, að liðið nær ekki Evrópusæti. Þegar höfðu verið vangaveltur um hvort Willum myndi halda starfi sínu hjá KR.
„Við núverandi aðstæður í íslenskum stjórnmálum lít ég svo á að mikil þörf sé fyrir Framsóknarflokkinn. Grundvallarstefna flokksins er mikilvæg í því verkefni að koma hér á trausti og stöðugleika,\" segir Willum í tilkynningunni sem vitnað er í á Vísi en Willum er fyrrum þingmaður hjá Framsóknarflokknum.
Willum tók við KR um mitt tímabil í fyrra þegar liðið var í erfiðri stöðu. Undir hans stjórn klifraði liðið upp í Evrópusæti og Willum var valinn þjálfari ársins.
Willum stýrði KR til Íslandsmeistaratitla 2002 og 2003.
Flestir stuðningsmenn KR vilja væntanlega fá Rúnar Kristinsson í þjálfarastarfið en Rúnar er án starfs eftir að hann var rekinn frá Lokeren. Rúnar hefur einnig verið orðaður við starf yfirmanns fótboltamála sem KSÍ hyggst setja á laggirnar. Þá hefur Arnar Grétarsson einnig verið orðaður við KR.