Fotbolti.net
27.09.18 - 13:33
Elvar Geir Magnússon

EM 2024 verður í Þýskalandi (Staðfest)

Ólympíuleikvangurinn í Berlín.

Ólympíuleikvangurinn í Berlín.

Canon

Mynd: Getty Images

Þýskaland vann Tyrkland í baráttunni um að halda Evrópumót landsliða árið 2024. UEFA tilkynnti það rétt í þessu en stjórn sambandsins kaus í Nyon í Sviss.

Þetta verður í fyrsta sinn sem sameinað Þýskaland heldur EM en mótið var haldið í Vestur-Þýskalandi 1988.

Þjóðverjar hafa þó mikla reynslu af því að halda stórmót í íþróttum og eru með allan aðbúnað til að gera það.

Í umsókn þeirra voru lagðir fram tíu leikvangar; í Berlín, Köln, Dortmund, Dusseldorf, Frankfurt, Gelsenkirchen, Hamborg, Leipzig, München og Stuttgart. Allir eru þeir tilbúnir til notkunar í dag.
Tyrkland hefur aldrei haldið alþjóðlegt stórmót í fótbolta.

Helstu gagnrýnendur þess að EM yrði haldið þar töluðu um að mannréttindamál væru í ólestri í landinu.

Þess má geta að EM 2020 mun verða haldið víða um Evrópu en undanúrslitin og úrslitaleikurinn í London. Gárungar kalla mótið 'EM allstaðar'.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.