27.10.12 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Kerim Frei lánaður til Cardiff (Staðfest)

Kerim Frei

Mynd: Getty Images

Kerim Frei

Mynd: Getty Images
Hinn 18 ára gamali Kerim Frei sem leikur fyrir Fulham í ensku úrvalsdeildinni hefur verið lánaður til enska fyrstu deildar félagsins Cardiff City.
Frei kom til Fulham frá Grasshopper í Sviss árið 2010, en hann lék með unglinga- og varaliði Fulham áður en hann var tekinn inn í aðalliðið, þar sem hann lék 16 leiki á síðustu leiktíð.
Cardiff City hefur ákveðið að fá leikmanninn lánaðan í einn mánuð, eða á svokölluðu neyðarláni. Hann hittir hjá Cardiff þá Aron Einar Gunnarsson, fyrirliða íslenska landsliðsins og Heiðar Helguson.
Það eru eflaust fáir sem að átta sig á þjóðerni drengsins þó, en hann fæddist í Austurríki og fluttist til Sviss þar sem hann lék með Grasshopper og yngri landsliðum Sviss.
Faðir hans er þó tyrkneskur og ákvað hann því að spila í framtíðinni með Tyrklandi. Þá vill svo skemmtilega til að móðir hans er frá Marokkó, svo hann hafði úr nokkrum landsliðum að velja eða fjórum talsins.