27.10.12 - 13:30
Daníel Freyr Jónsson
Fimm nýir leikmenn til Hauka (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Haukar fengu mikinn liðsstyrk í gær þegar tilkynnt var um samninga við fimm nýja leikmenn sem munu leika með félaginu næsta sumar.
Af leikmönnunum fimm eru þrír sem snúa aftur í uppeldisfélag sitt, en það eru þeir Ásgeir Ingólfsson, Hilmar Geir Eiðsson og Hilmar Rafn Emilsson.
Þá fékk félagið Viktor Smára Hafsteinsson að láni frá Keflavík, en sá lék einnig með yngri flokkum Hauka.
Að auki skrifað markvörðurinn Sigmar Ingi Sigurðsson undir tveggja ára samning. Hann var síðast til mála hjá Breiðablik.
Metnaðarfullt hjá Haukum sem setja greinilega stefnuna á að komast upp í deild þeirra bestu, en félagið hafnaði í 5. sæti 1. deildar í sumar og voru 10 stigum frá því að komast upp.