Fotbolti.net
27.10.12 - 16:23
Elvar Geir Magnússon

Ellert Hreinsson í Breiðablik (Staðfest)

Ellert Hreinsson í Breiðablik (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sóknarmaðurinn Ellert Hreinsson er kominn í Breiðablik á ný og hefur gert þriggja ára samning við félagið.

Þetta kemur fram á vefsíðunni blikar.is.

Ellert er 26 ára og hefur leikið með Stjörnunni síðan 2008. Hann skoraði fimm mörk í 16 leikjum fyrir Stjörnuna í sumar.
Ellert hefur einnig spilað með Víkingi Ólafsvík en hann var síðast hjá Blikum 2007 þegar hann kom við sögu í þremur leikjum í efstu deild.

Hann er annar leikmaðurinn sem gengur í raðir Blika eftir að tímabilinu lauk en hinn er landsliðsmarkvörðurinn Gunnleifur Gunnleifsson.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.