Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 27. október 2020 14:10
Elvar Geir Magnússon
Sigurpáll Melberg framlengir við Fjölni
Sigurpáll Melberg.
Sigurpáll Melberg.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sigurpáll Melberg Pálsson hefur framlengt samningi sínum við knattspyrnudeild Fjölnis til ársins 2022.

„Sigurpáll er öflugur varnarmaður með mikla reynslu en hann hefur leikið 121 leik og skorkað 5 mörk," segir í tilkynningu á heimasíðu Fjölnis.

„Þetta eru mikil gleðitíðindi en Sigurpáll hefur staðið sig vel síðan hann kom til liðs við Fjölni fyrir tímabilið 2018 og verið einn af lykilleikmönnum liðsins undanfarin tvö ár. Knattspyrnudeild Fjölnis óskar Sigurpáli til hamingju og væntir mikils af honum."

Sigurpáll er 24 ára og lék áður með HK, Fram og Aftureldingu.

Fjölnir er í neðsta sæti Pepsi Max-deildar karla en ljóst er að liðið mun spila í Lengjudeildinni á næsta ári.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner