Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 27. nóvember 2020 14:45
Magnús Már Einarsson
Digne frá í tvo til þrjá mánuði
Mynd: Getty Images
Carlo Ancelotti, stjóri Everton, hefur staðfest að vinstri bakvörðurinn Lucas Digne verði frá keppni næstu tvo til þrjá mánuði.

Franski landsliðsmaðurinn meiddist á æfingu í vikunni og fer í aðgerð á mánudaginn.

Digne er lykilmaður hjá Everton og meiðslin eru mikið áfall fyrir Ancelotti og hans menn.

„Þetta er mikið áfall því hann er stórkostlegur vinstri bakvörður, einn besti vinstri bakvörðurinn í Evrópu í augnablikinu en við þurfum að takast á við þetta og við getum gert það," sagði Ancelotti í dag.
Athugasemdir
banner
banner