27.11.20 - 17:30
Magnús Már Einarsson
Ísabella áfram hjá Þrótti - Stephanie og Laura farnar

Ísabella Anna Húbertsdóttir

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ísabella Anna Húbertsdóttir

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ísabella Anna Húbertsdóttir verður áfram á mála hjá Þrótti R. í Pepsi Max-deildinni næsta sumar.
Ísabella var á láni hjá Þrótti í sumar og spilaði fjórtán leiki. Hún hjálpaði nýliðum Þróttar að koma á óvart og enda í 5. sæti deildarinnar.
Ísabella var á láni hjá Þrótti í sumar og spilaði fjórtán leiki. Hún hjálpaði nýliðum Þróttar að koma á óvart og enda í 5. sæti deildarinnar.
Sóknarmaðurinn Stephanie Riberio og miðjumaðurinn Laura Hughes verða hins vegar ekki áfram hjá Þrótti á næsta tímabili.
Stephanie skoraði tíu mörk í fimmtán leikjum í sumar en hún hefur nú gengið til liðs við HB Köge í Danmörku.
Laura er frá Ástralíu og hún hefur gengið til liðs við Canberra United í heimalandi sínu.
Á dögunum fór vinstri bakvörðurinn Mary Alice Vignola einnig frá Þrótti í Val.

Stephanie Ribeiro

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Laura Hughes

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð