28.01.18 - 11:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mónakó kaupir 16 ára strák á 17,5 milljónir punda (Staðfest)

Pietro Pellegri.

Mynd: Getty Images

Pietro Pellegri.

Mynd: Getty Images
Mónakó hefur staðfest kaup á Pietro Pellegri frá Genoa og er kaupverðið á honum 17,5 milljónir punda.
Pellegri er aðeins 16 ára gamall. Kaupverðið er frekar hátt miðað við aldur en Pellegri þykir mjög efnilegur og hefur hann verið orðaður við lið eins og Manchester United, Arsenal og Juventus, svo einhver séu nefnd, síðustu mánuðina.
Hjá Mónakó kemur Pellegri til með að fylla í skarðið sem Guido Carrillo skildi eftir sig. Hann varð dýrasti leikmaður í sögu Southampton í vikunni.

„Ég er mjög ánægður að ganga í raðir AS Mónakó. Ég var mjög fljótt sannfærður af verkefni sem er í gangi hér, sem hjálpar ungum leikmönnum eins og mér að vaxa og dafna í framtíðinni,\" segir Pellegri í samtali við heimasíðu Mónakó.
„Ég mun leggja hart að mér að verða mikilvægur leikmaður fyrir félagið,\" sagði Pellegri.
Pellegri hafði leikið sjö leiki með Genoa á tímabilinu og skorað tvö mörk.