Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 28. janúar 2020 12:00
Elvar Geir Magnússon
Grealish og Maddison sagðir efstir á blaði Man Utd
Jack Grealish, leikmaður Aston Villa.
Jack Grealish, leikmaður Aston Villa.
Mynd: Getty Images
Manchester United gæti farið í gegnum janúargluggann án þess að fá leikmann. Félagið vill fá miðjumanninn Bruno Fernandes en erfiðlega gengur að ná samkomulagi við Sporting Lissabon.

Þá segir The Athletic að United hafi reynt á síðustu stundu að krækja í sóknarmanninn Jean-Kevin Augustin sem RB Leipzig lánaði til Leeds í gær.

The Independent segir að efstir á óskalista United fyrir sumarið séu James Maddison hjá Leicester og Jack Grealish hjá Aston Villa.

Leicester er líklegt til að landa Meistaradeildarsæti og þá verður erfitt fyrir United að fá Maddison. Grealish virðist líklegri kostur en Aston Villa er í harðri fallbaráttu.

Ef Villa fellur er talið nánast pottþétt að Grealish, sem er fyrirliði liðsins, yfirgefi uppeldisfélagið.
Athugasemdir
banner
banner