Hlín Eiríksdóttir var á skotskónum í dag þegar liðið hennar, Pitea, lagði Moron í æfingaleik. Pitea vann 6-0 sigur og skoraði Hlín tvö markanna. Hlín gekk í raðir Pitea, sem leikur í sænsku Allsvenskan, frá Val eftir síðasta tímabil.
Fjölnir vann þá 2-1 sigur á Þrótti í Egilshöllinni í gær þar sem Fjölnir komst í 2-0 áður en Þróttur minnkaði muninn. Fjölnir leikur í 2. deild á komandi leiktíð en Þróttur er í Pepsi Max-deildinni.
Ísbjörninn tók á móti Smára í gær á gervigrasvelli í Fagralundi og hafði Ísbjörninn betur með 6-0 sigri í roki og rigningu. Bæði lið leika í 4. deildinni í sumar.

Pitea 6 - 0 Moron
Fjölnir 2 - 1 Þróttur R.
1-0 Sara Montoro
2-0 Ólína Sif Hilmarsdóttir
2-1
Ísbjörninn 6 - 0 Smári
Ágúst Karel Magnússon með 3 mörk
Orats Reta Garcia 1 mark
Milos Bursac 1 mark
David Jaen Ibarra 1 mark
Meistaraflokkur kvenna gerði sér lítið fyrir og sigraði Þrótt Reykjavík 2-1 í æfingaleik í Egilshöllinni í dag, eftir að hafa komist í 2-0. Okkar mörk skoruðu þær Sara Montoro og Ólína Sif #FélagiðOkkar💛
— Fjölnir FC (@Fjolnir_FC) February 27, 2021
Athugasemdir