Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   sun 28. febrúar 2021 09:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Halldór kinnbeinsbrotnaði þegar hann skoraði - Frá í 4-6 vikur
Halldór Jón Sigurður
Halldór Jón Sigurður
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Halldór Jón Sigurður Þórðarson skoraði fyrsta mark Víkinga gegn Kórdrengjum á föstudag en því fylgdi talsverður fórnarkostnaður.

Halldór lenti í samstuði við markvörð Kórdrengja og þurfti að hætta leik. Í ljós er komið að Halldór er kinnbeinsbrotinn og með sprungu upp í höfuðkúpu út að auga.

Hann fór í aðgerð í gær sem heppnaðist vel, búið er að laga kinnbeinið. Líðan Halldórs er góð en reiknað er með því að hann verði frá í 4-6 vikur.

Leikurinn á föstudag endaði með 3-1 sigri Víkings og má sjá innslag úr fréttatíma Stöðvar 2 um leikinn hér að neðan.

Athugasemdir
banner
banner