Keflavík 2 - 0 Selfoss
1-0 Ari Seinn Guðmundsson ('53)
2-0 Joey Gibbs ('60)
1-0 Ari Seinn Guðmundsson ('53)
2-0 Joey Gibbs ('60)
Keflavík mætti liði Selfoss í lokaleik dagsins í A-deild Lengjubikars karla. Leikið var í Reykjaneshöllinni og eru liðin í riðli þrjú.
Markalaust var í leikhléi en á 53. mínútu skoraði varamaðurinn Ari Steinn Guðmundsson fyrsta mark leiksins.
Ástralska markavélin Joey Gibbs er mætt til landsins og skoraði hann seinna mark heimamanna á 60. mínútu.
Það reyndist lokamark leiksins og er Keflavík nú með sjö stig eftir þrjá leiki, tveimur stigum á eftir toppliði Stjörnunar. Selfoss hefur enn ekki náð í stig.
Athugasemdir