Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 28. mars 2023 14:56
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu auglýsingu Bestu deildarinnar sem er ekki síðri en sú síðasta
Mynd: Skjáskot
Núna rétt í þessu var verið að opinbera sérstaka auglýsingu sem var gerð fyrir Bestu deildina.

Auglýsingin í fyrra vakti mikla athygli og það er óhætt að segja að auglýsingin í ár sé ekki síðri. Fyrrum landsliðsmarkvörðurinn Hannes Þór Halldórsson leikstýrir auðvitað auglýsingunni.

Leikmenn, þjálfarar, stjórnarmenn og fréttamenn koma fyrir í auglýsingunni með söngvarann Jón Jónsson í broddi fylkingar.

Ólympíumeistarinn Erin McLeod er mætt í Bestu deildina og í auglýsinguna má sjá þegar hún spyr eiginkonu sína, Gunnhildi Yrsu Jónsdóttur, út í það af hverju þær fluttu frá Orlando. Einnig koma þjálfararnir Arnar Gunnlaugsson og Óskar Hrafn Þorvaldsson við sögu.

Þá má sjá þegar bræðurnir Jón Rúnar og Viðar Halldórssynir leggja línurnar fyrir Heimi Guðjónsson, þjálfara FH.

Þessa skemmtilegu auglýsingu má sjá í heild sinni hér fyrir neðan en Besta deild karla hefst 10. apríl næstkomandi.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner