Fotbolti.net
28.03.26 - 16:08
Brynjar Ingi Erluson

Byrjunarlið Íslands - Orri og Brynjólfur fremstir

Fyrirliðinn er mættur aftur í liðið

Fyrirliðinn er mættur aftur í liðið

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eimskip
Íslenska karlalandsliðið spilar vináttulandsleik við Kanada á BMO-leikvanginum í Toronto í Kanada klukkan 17:00 í dag, en Arnar Gunnlaugsson hefur tilkynnt byrjunarlið sitt.
Lestu um leikinn: Kanada 2 - 2 Ísland
Orri Steinn Óskarsson, fyrirliði landsliðsins, snýr aftur eftir að hafa verið frá vegna meiðsla í síðustu gluggum. Hann er fremstur ásamt Brynjólfi Andersen Willumssyni sem er að leika áttunda A-landsleik sinn.

Vörnin er sterk. Guðlaugur Victor Pálsson er í hægri bakverði, Mikael Egill Ellertsson vinstra megin og þá verður Hörður Björgvin Magnússon og Sverrir Ingi Ingason í miðri vörn.

Við fáum Skagatenginguna áfram á miðsvæðinu með þá Ísak Bergmann Jóhannesson og Hákon Arnar Haraldsson, og þá eru Jón Dagur Þorsteinsson og Kristian Nökkvi Hlynsson á köntunum.

Elías Rafn Ólafsson er á sínum stað í markinu. Leikurinn hefst eins og áður segir klukkan 17:00 og er í beinni textalýsingu hér á Fótbolti.net

Byrjunarliðið:
Elías Rafn Ólafsson (M)
Guðlaugur Victor Pálsson
Sverrir Ingi Ingason
Hörður Björgvin Magnússon
Mikael Egill Ellertsson
Ísak Bergmann Jóhannesson
Hákon Arnar Haraldsson
Kristian Nökkvi Hlynsson
Jón Dagur Þorsteinsson
Brynjólfur Andersen Willumsson
Orri Steinn Óskarsson (F)



Brynjólfur er frammi með Orra

Brynjólfur er frammi með Orra

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.