Kanada 2 - 2 Ísland
0-1 Orri Steinn Óskarsson (f) ('9 )
0-2 Orri Steinn Óskarsson (f) ('22 )
1-2 Jonathan David ('66 , víti)
2-2 Jonathan David ('75 , víti)
Rautt spjald: Tajon Buchanan, Kanada ('81)
Lestu um leikinn
0-1 Orri Steinn Óskarsson (f) ('9 )
0-2 Orri Steinn Óskarsson (f) ('22 )
1-2 Jonathan David ('66 , víti)
2-2 Jonathan David ('75 , víti)
Rautt spjald: Tajon Buchanan, Kanada ('81)
Lestu um leikinn
Ísland heimsótti Kanada í æfingaleik í Toronto í dag.
Orri Steinn Óskarsson var í byrjunarliðinu en þetta var fyrsta landsliðsverkefnið hans í dágóðan tíma. Hann kom Íslandi yfir snemma leiks.
Kamal Miller, varnarmaður kanadíska liðsins, átti arfaslaka sendingu til baka og Orri náði boltanum og skoraði af öryggi. Hann bætti síðan öðru markinu við eftir frábæran undirbúning hjá Mikael Agli Ellertssyni.
Kanada stjórnaði ferðinni það sem eftir var fyrri hálfleiks án þess þó að ógna marki Íslands mikið og Ísland var með tveggja marka forystu í hálfleik.
Kanada fékk frábært færi til að minnka muninn eftir klukkutíma þegar Jonathan David var í dauðafæri en Elías Rafn Ólafsson lokaði vel á hann.
Kanada fékk vítaspyrnu stuttu síðar þegar Mikael Egill gerðist brotlegur og David skoraði af öryggi. Kanada fékk aðra vítaspyrnu þegar Hörður Björgvin Magnússon gerðist brotlegur og aftur skoraði David og jafnaði metin.
Heimamenn spiluðu manni færri síðustu tíu mínúturnar þar sem Tajon Buchanan fékk að líta rauða spjaldið fyrir að gefa Mikael Agli olnbogaskot.
Íslenska liðið náði sér ekki á strik í seinni hálfleik. Brynjólfur Willumsson komst í fínt færi í blálokin en skoti varið frá honum. Jafntefli niðurstaðan.
Ísland mætir Haíti í öðrum æfingaleik á þriðjudaginn.
Athugasemdir

