Toppliðið vill Anderson - Erkifjendur á eftir leikmanni Real Madrid - Lewandowski og Greenwood til Juve?
   lau 28. mars 2026 17:24
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Kári: Þess vegna á Gylfi alltaf að vera í þessu liði
Eimskip
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gylfi Þór Sigurðsson er kominn aftur í landsliðshópinn en þetta er í fyrsta sinn sem Arnar Gunnlaugsson velur hann í alþjóðlegum glugga. Hann byrjar á bekknum í dag þar sem Ísland mætir Kanada í æfingaleik ytra.

Lestu um leikinn: Kanada 2 -  2 Ísland

Kári Árnason, sérfræðingur á Sýn Sport, segir að Gylfi ætti að vera með fast sæti í hópnum. Kári og Gylfi voru saman í landsliðinu á sínum tíma og vinna saman hjá Víkingi í dag.

„Ef þú myndir setja hann í keppni við einhverja af þessum gæjum (sem hann er að berjast um sæti við) þá myndi hann vinna þessa keppni. Það er staðreynd og þess vegna á hann alltaf að vera í þessu liði," sagði Kári.

„Í þessu kerfi er bara ein staða sem hann gæti spilað og það yrði á kostnað Ísaks eða Hákonar. Ég væri til í að spila Hákon og Gylfa spila saman, ég geri mér grein fyrir því að hann sé ekki að yngjast og er ekki alveg jafn æðislegur leikmaður og hann var. Hann er samt frábær leikmaður og á að vera í hópnum alla daga vikunnar."

Kristian Nökkvi Hlynsson er á kantinum og Bjarni Guðjónsson sem er sérfræðingur í setti Sýnar með Kára spurði hvort Gylfi gæti leyst þá stöðu.

„Hann gæti það en það er spurning með hraða, hann er að dekka kantmann eða fljótan bakvörð, það gæti verið vesen," sagði Kári.
Slapp
Athugasemdir
banner
banner