Völsungur 2 - 3 Kormákur/Hvöt
0-1 Snorri Steinn Árnason ('43 )
0-2 Hlib Horan ('48 )
1-2 Tómas Bjarni Baldursson ('50 )
2-2 Arnar Pálmi Kristjánsson ('51 )
2-3 Guzman Díaz Scarone ('92 )
Lestu um leikinn
0-1 Snorri Steinn Árnason ('43 )
0-2 Hlib Horan ('48 )
1-2 Tómas Bjarni Baldursson ('50 )
2-2 Arnar Pálmi Kristjánsson ('51 )
2-3 Guzman Díaz Scarone ('92 )
Lestu um leikinn
Kormákur/Hvöt mun leika í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins eftir að hafa unnið Völsung, 3-2, eftir framlengdan leik á GPG-vellinum á Húsavík í dag.
Gestirnir voru í stöðu til að ganga frá einvíginu mun fyrr en þeir komust í 2-0 með mörkum í lok fyrri og byrjun síðari hálfleiks. Snorri Steinn Árnason skoraði á 43. mínútu er hann náði að reka tánni í boltann í Jeffrey Baltus, markvörð Völsungs, sem náði þó ekki að bjarga og boltinn í netið.
Hlib Horan bætti við forystuna í byrjun síðari eftir frábæra sendingu frá Guzman Diaz en Völsungur kom til baka með tveimur mörkum á tæpum tveimur mínútum.
Tómas Bjarni Baldursson stangaði boltanum í netið á fjærstönginni og jafnaði Arnar Pálmi Kristjánsson metin andartaki síðar. Elfar Árni Aðalsteinsson vann boltann, keyrði á vörnina og lagði hann síðan út á Arnar Pálma sem skoraði.
Það var barist á báðum endum vallarins en mörkin urðu ekki fleiri eftir venjulegan leiktíma og því framlengt. Gestirnir frá Blönduósi komust snemma aftur í forystu er Guzman Diaz fékk boltann inn fyrir og kláraði snyrtilega einn á móti markverði.
Völsungar pressuðu stíft undir lok hálfleiksins en áðu ekki að koma inn marki.
Í seinni Húsvíkingar hvað þeir gátu til þess að brjóta niður vörn gestanna en án árangurs.
Það er því Kormákur/Hvöt sem mun spila í 32-liða úrslitum bikarsins en þar mæta þeir Breiðabliki á heimavelli.
Athugasemdir


